|
23.12.2006 02:46:26 / 23bha
Sökkar já þið heyrðuð það Big fokking tasty er argasti viðbjóður
sem um getur. Ekki ætla ég að taka svo djúpt í árina að segja að
hann sé verri en karrý hamborgarinn í lindini en motherfuckerinn er
damn close. Sko hann byrjar vel, svellþykkt kvikindi með miklu
kjöti og helling af grænmeti og sósu. En þar kemur einmitt galli
gripsins. það er svo mikið af sósu og káli að eftir nokkra bita fer
að valla útum allt sósa og kál sem gerir þetta vandræðalegt. Svo
kemur þetta "grillbragð" og ég get svarið það að þeir taka sko
svitann sem lekur af hamborgaranum og hræra það saman við majó og
skella nafni á það. Svo voru franskarnar líka kaldar. Ekki sáttur
við þetta helvíti
En já svo verður einhver durtur að redda mér með vísnasöng laginu
sem dr.spock (held ég) tóku sem er í spilun á x-inu mér finnst það
í alvörunni geðveikt gott lag.
»
29.11.2006 14:10:38 / 23bha
Einu sinni voru tvær franskar að labba yfir götu. Þá er keyrt yfir
aðra frönskuna. Þá segir hin franskan að bragði PUNGUR
Einu sinni voru tvær franskar að labba yfir götu, þá er keyrt yfir
aðra frönskuna og hin segir viðstöðulaust komdu þarna kókið
þitt
Til gamans má einnig geta að liðið sem skeit á sig í lífinu og vann
ekki supernova keppnina er að koma til landsins með house band að
halda tónleika, who cares ?
»
13.11.2006 11:40:48 / 23bha
Ó mamma gef mér rós í hárið á mér
því tveir littlir strákar eru skotnir í mér.
Þeir eru gulir og þeir eru hvítir
ó mamma gef mér rós í hárið á mér.
Þegiðu stelpa þú færð enga rós,
farðu frekar með henni Gunnu út í fjós,
þar eru beljur og þar eru kýýýr
þar eru fötur til að mjólka í.
(skal syngjast eins og vísa en með pínu takti)
»
16.10.2006 22:11:34 / 23bha
Hérna sjáum við einhvern sem varð fyrir því óláni að vera cappaður
í paintball. Það kom reyndar ekki fyrir mig um helgina þannig að
kemur hinir ?
Undirritaður fór fyrir hönd ma á framhaldsskólamótið í paintball um
helgina. Sveittasta ferð sem ég hef farið í í svo langan tíma. 2x
KFC, Mc, Pizza hut og svo margt fleira sveitt. Liðið var þannig
skipað : Ég, Stebbi, Aron (aKa ronnie G), Krissi, Einsi, Hólmar
(aKa hómls) og Jón Gísli (aKa Johnny G). Fannst svalt að setja aka
í sviga með svona til að þetta lúkki harðara. Þannig fór að við
piltarnir fórum þarna svona frekar rólegir og eftir að 3 þarna
höfðu lent í 2 sæti í fyrra voru væntigarnar til liðsins miklar en
vorum þó hófsamir á væntigarnar ? Allaveganna svo fór sem fór og
við spiluðum 10 leiki og unnum 10 og erum að fara suður á morgun í
4 liða úrslit til að klára dæmið ! Ákvað að gera þetta í dag svona
áður en við vitum hvort við vinnum eða ekki.
Fokking snilld mafakkaHZ þannig að spiliði paintball og ekki vera
núbbar því þá kemur það sama fyrir ykkur og gæjann á myndinni.
enginn friður í þetta skiptið bara shoot to kill!
»
04.07.2006 22:31:38 / 23bha
Útskrifarferð til Búlgaríu á eftir hugsanlega að ná þessari ferð en
það verður erfitt gott fólk það verður erfitt. þetta var bara bull.
Bjór kassi með 30 bjórum á 200 danskar og svíar í næsta tjaldi
hendandi general í smettið á manni er aðeins hægt að nýta á einn
veg og sá vegur er góður.
Einnig má benda á að looptroop og immortal tech tóku lagið og ég
var pínu glaður. Næstu dagar fara í að ná áfenginu úr blóðinu
PEACE!
»
07.06.2006 00:29:39 / 23bha
Það var einn ágætis sunnudagsmorgunn að undirritaður vaknar og
gengur á brók sinni fram á gang og inn á klósettið. Nú vill svo
óheppilega til að jörðin eða þarna draslið sem fólk gengur á fyrir
utan húsið er hátt ? miðað við gluggann ? það sem ég er að reyna að
segja er að ef ég sit og er að skíta á þessu klósetti getur hver
sem er labbað framhjá og litið innum gluggan niður á mig og sér
allt heila klabbið. Ég var ekki ennþá kominn í gang þar sem ég
vaknaði einungis nokkrum sekúntum áður og fer þarna og míg. Síðan
heyri ég bara "það þarf að hækka lóðina hérna sjáðu og þessi gluggi
það þarf að setja eitthvað drasl í hann svo það sjáist ekki inn".
Já ég lít við og þar stendur fólkið sem er að fara að kaupa húsið
og ég spyr sjálfan mig er fólkinu ekkert heilagt ?! má ekki hækka
lóðina eftir að ég er búinn að míga. Já sannarlega leiðinlegt og
vandræðalegt atvik.
Þá í aðra mun betri sálma. Hver man ekki eftir Charles
Barkley ? sá hinn sami verður bara að eiga það við sig en
allaveganna ég fann í skápnum mínum um daginn eldgamla charles
Barkley tösku sem er fjólublá og stendur á "Charles Barkley Basket
King" stórum stöfum. Þessi taska er mest kassalaga eins og hún gæti
verið en ég keypti hana síðustu eða þarsíðustu versló í einhverri
búð ? wtf ??
»
25.05.2006 12:09:06 / 23bha
ahahah i like beging purple.
Datt í hug að létta lund manna í prófum og hver er meiri maður í
verkið en Patrick ?
»
03.05.2006 23:49:42 / 23bha
Dæmi um einfrumung er einmitt Amamba en hún hreifir sig með
svokölluðum amömbuhreyfingum sem eru stórskemmtilegar að sjá.
Já ég sá á einverri bloggsíðu eitthvað blabla svona trúirðu á guð
dæmi. Ég trúi ekki á guð og svo þegar einhver biður um hjálp guðs
og fær hana ekkert frekar en fyrri daginn segir einhver "guð
hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir". Gæti ég þá ekki bara hjálpað
mér sjálfur og verið nákvæmlega jafnfætis þeim sem láta guð hjálpa
sér eftir að þeir eru búnir að hjálpa sér sjálfir ? Ég bara
spyr
Mjög líklega versti og vandræðalegasti fyrirlestur sem haldinn
hefur verið í Tóm í dag en þeir sem voru staðsettir vita meira um
þetta mál. Tóm 4 evah !
»
22.04.2006 15:17:35 / 23bha
Bucanero sjóræningjabjór : Yarrr genius
það var víst að slóganið á þeim frábæra bjór sem var haldinn
hátíðlegur við sundlaugabakkann á kúbu
Svo fóru víst nokkrir pina colada niður ásamt slettu af romm í kók
sem var geðveikt gott þarna ekki spyrja mig af hverju.
Svo var farið að kafa og ég þufti að æla á 20 m dýpi og var búinn
með súrefnið mitt og gat ekki farið uppá yfirborðið að æla svo ég
hélt því niðrí mér alla leið í land en ef ég gæti ýmindað mér
helvíti þá væri það einhvernvegin þannig. En á miðri leið fann ég
eitthvað sker og reif mig lausann frá kafara kennaranum og súrefni
hans og svamlaði á skerið og ældi svo mikið og það var svo
gott.
Svo borðuðum við mat og mikið af því var ótrúlega slæmt en hitt var
gott. Pizzurnar þarna sem var mælt með að éta voru ekkert góðar og
hamborgararnir voru hreinræktaður viðbjóður. Steikurnar var það
eina sem var gott og þær voru sweeet.
Svo brann ég 3 sinnum eða eitthvað sem er ekkert gaman ooooooog ÞAÐ
ERU HNETUR Í ÖLLU Á KÚBU ! ég ætlaði að fá mér lambasteik og það
VORU HNETUR í sósunni ! en já gaman gaman
Skemmtilegast við köfunina var samt að þegar maður kom í sjóinn þá
gat maður migið eins og maður vill og það var svo unaðslegt í
alvöru maður er einhversstaðar útí rassgati með huge kút á bakinu
og maður er alveg að kafna og kann ekki að synda og eitthvða vesen
þá pissar maður bara og það er svo gott að þið trúið því ekki
einungis ég og stebbi getum sannað hversu ótrúlega gott það er.
Svo gerði ég fullt af öðru skemmtilegu sem ég nenni ekki að
lýsa
»
03.04.2006 00:00:33 / 23bha
já ég hef lítið annað að segja en screw you guys im goin to Cuba
HAH !
bæ
»
30.03.2006 19:50:55 / 23bha
Hver kannast ekki við gamla góða hittarann sísí fríkar úti ? það er
spurning sem allir hafa spurt sig undanfarna daga en engin svör eru
við því nema grýlurnar og uppáhalds smellurinn þeirra sísí fríkar
úti. Nema það sé bara ég sem að að hlusta á þetta.
Einnig er ég búinn að sigra hvar er valli bókina mína andskoti oft
en ég fékk hana einmitt á tilboði í bókvali á einungis 490 krónur !
já margt skemmtilegt á ferð í þeirri vallabók en er þetta sú 5 sem
kemur út og hefur hún fengið góða dóma. Já það er rétt en ég tók
mig til og las bókina núna og fannst mér það helvíti gott. Grafíkin
var reyndar ekki upp á sitt besta fyrir ykkur grafík fíklana en
hugmyndin á bakvið þessa frábæru bók er einstök. Nú hún er frekar
stutt þannig að maður fær leið á henni en hún heldur manni
heljargreipum á meðan þú lest hana. (Game tíví style svona eins og
þetta séu tveir gaurar að gagnrýna nýjasta hvar er valla leikinn
nema þetta er bók)
Jeyj suður á laugardag og fara í fermingu til littlu frænku.
Stefnan er sett á að ná allaveganna 2 big mac allaveganna ef það
verður farið heim á sunnudaginn. Annars hef ég nákvæmlega ekkert að
segja þið þarna ha einmitt ?
»
16.03.2006 19:00:05 / 23bha
Undanfarna daga hef ég verið að spá í því hvort að það sé nokkuð að
mér eða eitthvað í gangi og eftir gífurlegar rannsóknir og
tilraunir hef ég komist að þeirri niðurstöðu að meinið er þreyta.
Já ég þjáist af þreytu.
Var að koma úr barnaafmæli og þegar littlu kapparnir voru búnir á
sykurtrippinu sínu komu þeir í sófann sem ég var búinn að koma mér
vel fyrir í og róa þeir sig niður. Áður en ég veit af BAMM ég var
næstum búinn að sofna á mig þrátt fyrir að hafa verið að horfa á
ótrúlega spennandi stundin okkar þátt. Ekki batnaði ástandið þegar
ég kom heim því ég var næstum búinn að sofna á mig í tölvustólnum.
Þarna er um að ræða beina afleyðingu sjúkdómsins sem ég var að
greina og tel ég ekki neinn vafa leika á að um þreytu sé hér að
ræða. En hverjum á að kenna um þetta ? Lítill svefn segja örugglega
margir en þarna er um rangan misskilning að ræða og ég myndi segja
að um dýpri merkingu sé hér að ræða og er rannsókn hafin og ætla ég
að byrja á því að leggjast aðeins uppí rúm og gá hvort ég
sofni.
Buttersweetness over and out.
»
11.03.2006 01:49:29 / 23bha
Rétt í þessu var ég að komast að einu skemmtilegu en það er einmitt
sú staðreynd að það að vera edrú driver er ekki alls kostar ólukku
skorðað ? Núna var ég einmitt að koma af odd-vitanum og var edrú og
það var hræðilegt þarna bara vona svo við förum fínt í hlutina og
þá gat ég staðið upp og sagt NEI ! hingað og ekki lengra og farið
heim.
Svo komst ég líka að einu öðru en það er einmitt að ég kann ekki að
teikna. Það er reyndar ekkert nýtt af nálinni því jú einhverntíman
þegar vindarnir voru nú aðrir stundaði maður myndment og var það
ekki mín sterkasta hlið.
Brandari dagsins
ef þú blandar saman kiwi fugli og mandarínu hvað færðu þá út ? jú
kiwi ! hehehehehheehehehehheehhehe ! einmitt.
»
26.02.2006 17:17:06 / 23bha
góð helgi góð helgi.
Tvister, gimme gimme gimme með abba og heimabruggað vín ala
þorvaldur verð ég bara að segja að sé gjörsamlegur hittari. Þessi
partýleikur verður endurtekin í bráð það eitt er ljóst.
Ég áttaði mig á því að ég kann ekki að dansa og að snjórinn í
hlíðarfjalli er fokking fake ! það kemur sem sjokk.
Svo var ég líka að keyra áðan og keyrði næstum því á 2 stelpur það
var ekkert fyndið því ég var algjörlega blindaður af sól og þrumaði
niður og beygði inná miðja götu og enginn slasaðist og fer ég að
hallast gríðarlega mikið að þeirri kenningu að um dangerus reetard
sé að ræða.
Tvister er líka svo mikið snilldarspil ! ef ekki of margir gaurar
eru inná í einu getur þetta orðið hin mesta skemmtun
böbba over and out
»
13.02.2006 19:14:57 / 23bha
já
nei
Jæja það er tími til kominn til að opna aftur allar flóðgáttir og
byrja með brandarahornið sem tröllreið landanum hérna á árum áður.
Mikil ritstífla hefur átt sér stað hjá höfundi síðastliðna daga í
brandaramálum en þar sem það hefur aldrei stöðvað neinn í að skrifa
eitthvað heldur maður ótrauður áfram og byrjar.
Einu sinni var maður að kaupa sér ís og biður um ís í brauði.
Stuttu seinna kemur afgreiðslukonan og réttir honum ís í
fransbrauði ! HAHAHHAHAHAHA
fattiði ís .. í BRAUÐI ?! HAHAHHAHAAHAHAHHAHAHAHAHAHA
Ég þakka kærlega fyrir mig.
böbba
»
Síður: 1 2
|